14. mars 2008
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í fundarsal að Flatahrauni 3, Hafnarfirði, föstudaginn 14. mars 2008 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
-
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
-
Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
-
Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
English
Íslenska
Español